Innlent

Hraðakstur við skrifstofu forsetans

Lögreglumaður við hraðamælingar. Í gærkvöldi var hinsvegar mannlaus bíll sem mældi við Sóleyjargötuna.
Lögreglumaður við hraðamælingar. Í gærkvöldi var hinsvegar mannlaus bíll sem mældi við Sóleyjargötuna.
Sautján ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Sóleyjargötu í Reykjavík í gærkvöld en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Þetta kemur frama í tilkynningu frá lögreglunni í höfuðborgarsvæðinu. Skrifstofa forseta Íslands er til húsa að Sóleyjargötu 1.

Í tilkynningunni segir ennfremur að reynslan hafi sýnt að notkun slíks búnaðar gefi gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldi leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gærkvöld séu hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

„Eins og fyrr sagði voru brot 17 ökumanna mynduð á Sóleyjargötu en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, að Bragagötu. Á einni klukkustund, frá kl. 20.05 til 21.05, fór 271 ökutæki þessa akstursleið og því óku 6% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrír óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 73.

Tilkynnt hefur verið um hraðakstur og hávaða frá ökutækjum á kvöldin á þessum stað til lögreglu. Mörgum bifhjólum var ekið eftir götunni á meðan vöktunin stóð yfir og fylgdi þeim talsverður hávaði. Aðeins einu þeirra var samt ekið of hratt eða yfirskiptahraða. Hávaðinn frá bifhjólunum virðist því stafa af útblásturskerfi þeirra frekar en hraðakstri."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×