Innlent

Innbrotsþjófar enduðu bílferð á vegg

Þrír innbrotsþjófar enduðu bílferð sína á steinvegg við Brúnaveg í Reykjavík, í grennd við Hrafnistu, þegar þeir voru að reyna að stinga lögregluna af. Þeir slösuðust ekki en hlupu hver í sína áttina eftir að bíllinn nam staðar. Einn þeirra náðist. Í bílnum fannst mikið af tóbaki sem stolið hafði verið úr söluturni við Háaleitisbraut fyrr um nóttina og GPS-tæki sem þeir hafa líklega stolið úr einhverjum bíl. Lögregla telur sig vita hverjir sluppu á hlaupum í nótt og er þeirra leitað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×