Innlent

Með borgina í vasanum

Mobileguide er gjaldfrjáls gagnvirk upplýsingahandbók.
Mobileguide er gjaldfrjáls gagnvirk upplýsingahandbók.

Mobileguide er gjaldfrjáls gagnvirk upplýsingahandbók sem sérhönnuð er fyrir farsíma og lófatölvur. Handbókin er jafnt ætluð íslendingum sem og erlendum ferðamönnum og býður upp á margvíslega möguleika svo sem að leiða þig um götur Reykjavíkur eða kynna fyrir þér þjónustur og markverða staði á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá höfuðborgarstofu. Þá segir að í handbókinn sé að finna nákvæmt götukort af höfuðborgarsvæðinu og í henni megi jafnvel fletta upp í leiðakerfi Strætó.

„Ymir Mobile er íslenskt sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun á hugbúnaði fyrir farsíma og lófatölvur. Samstarf við höfuðborgarstofu hófst sumarið 2008 með útgáfu á farsímahugbúnaði fyrir Menningarnótt. Þótti samstarfið ganga það vel að ákveðið var að halda því áfram með útgáfu hugbúnaðar fyrir Vetrarhátíð í febrúar. Viðtökurnar voru mjög góðar og sóttu þúsundir íslendinga hvorn hugbúnað fyrir sig.

Dreifing Mobileguide var formlega sett af stað síðastliðinn föstudag, 15. maí, og hafa viðtökurnar þegar verið mjög góðar. Viðræður við fleiri sveitarfélög um aðkomu að handbókinni eru komnar vel á veg og má búast við fyrstu uppfærslu á næstu vikum.

Mobileguide er fáanlegur á því sem næst alla farsíma og er algjörlega gjaldfrjáls. Til að nálgast hugbúnaðinn er slóðin mobileguide.is/download slegin inn í netvafrann á farsímanum og leiðbeiningum á skjánum fylgt. "






Fleiri fréttir

Sjá meira


×