Hækkun gjalda hefur óhjákvæmilega neikvæð áhrif 28. maí 2009 18:39
Gjöld á bíla, eldsneyti, áfengi og tóbak hækka um tíu til fimmtán prósent, samkvæmt stjórnarfrumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi í kvöld. Fjármálaráðherra segir að ekki verði hjá því komist að hækkun gjalda hafi neikvæð áhrif á verðlagið. Hugmyndir um tekjuöflun og niðurskurð til að mæta gríðarlegum fjárlagahalla voru kynntar þingflokkum Samfylkingar og Vinstri grænna í gærkvöldi. Hækkun tekjuskatts hefur verið rædd og í kvöld verður lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp sem gerir ráð fyrir 10% hækkun bifreiðagjalds og 15% hækkun gjalda á tóbak og áfengi. Tíu króna hækkun verður á bensíngjaldi, olíugjald hækkar um fimm krónur, en kílómetragjald lækkar aftur á móti um 20%. Næsta víst er að landsmenn muni áfram kaupa þessa vöruflokka þrátt fyrir verðhækkun - en ljóst er að hækkunin fer beint út í verðlagið, togar upp vísitölu neysluverðs og verðtryggð lán - og þrengir því enn skuldastöðu heimilanna. „Jú, það er að sjálfsögðu neikvætt að því fylgi neikvæð verðlagsáhrif. En undan því verður ekki vikist. Það eru fáir og í raun engir góðir kostir í stöðunni. Þetta er val á milli erfiðra leiða til að reyna að ná tökum á hallanum á ríkissjóði og byrja að ná þar endum saman," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Hækkun vörugjalda á að skila um fimm milljörðum til ríkisins á ári.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Sjá meira