Innlent

Grunaður um sérstaklega ofbeldisfulla nauðgun

Portúgali á fertugsaldri hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan á laugardaginn en hann er grunaður um sérstaklega ofbeldisfulla nauðgun. Rannsóknardeild kynferðisbrota auglýsti í gær eftir leigubílstjóra sem mögulega keyrði manninn og meint fórnalamb hans í heimahús í Hafnarfirði á Uppstigningadag.

Að sögn Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, þá er enn verið að vinna úr upplýsingum frá leigubílstjórunum. Að hans sögn gerðist ekkert saknæmt í bílunum heldur sé verið að reyna fá heildræna mynd af atburðarásinni og sannreyna framburði.

Rannsókn miðar vel en gæsluvarðhald rennur út á morgun. Að sögn Björgvins er ekki loku skotið fyrir að það verði sóst eftir framlengingu á varðhaldi mannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×