Innlent

Vörubíll valt á Selfossi - ökumaður grunaður um ölvunarakstur

Frá vettvangi þar sem bifreiðin valt í dag.
Frá vettvangi þar sem bifreiðin valt í dag. Mynd/Þórir Tryggvason

Vörubifreið sem ekið var um hringtorgið við Ölfusárbrú á Selfossi valt á sjötta tímanum í dag. Tildrög slyssins eru óljós á þessari stundu en að sögn lögreglu er ökumaður vörubifreiðarinnar grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.

Hvorki ökumaðurinn né aðrir meiddust í slysinu. Mikil umferðarteppa er á svæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×