Beðið eftir endurskoðun Helga Arnórsdóttir skrifar 28. maí 2009 12:13
Formaður Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi segir að ekkert verði aðhafst í málum er varða greiðslur Kópavogsbæjar til fyrirtækis í eigu dóttur Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra fyrr en niðurstaða endurskoðanda liggi fyrir. Mál sem tengist greiðslum bæjarins til Klæðningar sem var í eigu Gunnars verði þá einnig tekin fyrir. Framsóknarmenn í Kópavogi taka í sama streng. Helga Arnardóttir. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var greint frá því að verktakafyrirtækið Klæðning ehf. sem var í eigu Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra Kópavogs til 2003 hafi fengið greitt frá bænum hátt í 130 milljónir króna fyrir jarðvegsvinnu, gatnagerð og annað á árunum 1997-2001. Gunnar sat í bæjarstjórn á þeim tíma. Þetta kemur fram í opinberum gögnum frá Kópavogsbæ sem Samfylkingin óskaði eftir árin 99-2002. Þá kom einnig fram að Frjáls miðlun í eigu dóttur Gunnars hafi fengið um 70 milljónir króna í greiðslur frá bænum síðustu fjórtán ár. Jóhann Ísberg formaður Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi vildi ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins en segir sjálfstæðismenn í bænum vera ásátta um að beðið verði eftir niðurstöðu endurskoðanda hjá Deloitte sem nú kanni greiðslur bæjarins til Frjálsrar miðlunar. Greiðslur bæjarins til Klæðningar verði rædd samhliða því. Hann segir að Gunnar njóti víðtæks stuðnings meðal sjálfstæðismanna í bænum. Gestur Valgarðsson formaður Framsóknarfélagsins í Kópavogi segir að varast þurfi viðskipti af þessu tagi og þau þurfi að vera hafin yfir allan vafa. Rætt hafi verið innan flokksins að slíta meirihlutasamstarfinu en þeir sjái ekki ástæðu til þess fyrr en niðurstaða endurskoðunar liggi fyrir.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Sjá meira