Innlent

Þvingaður út af Vesturlandsvegi

Úr myndasafni.
Úr myndasafni.
Lögreglan þvingaði ökumann bifreiðar af Vesturlandsvegi við Höfðabakkabrú eftir stutta eftirför á áttunda tímanum í kvöld. Lögregla hafði áður borist ábending um manninn sem er að sögn lögreglu andlega vanheill. Hann mun ekki hafa ekið yfir leyfilegum hámarkshraða.

Eftirförin hófst í Mosfellsbæ og endaði hún líkt og áður sagði þegar að lögregla þvingaði manninn út af Vesturlandsvegi við Höfðabakkabrú þar sem hann var handtekinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×