Innlent

Staðfesti ársfangelsi fyrir hrottafengna árás

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hæstiréttur dæmdi manninn í árslangt fangelsi. Mynd/ GVA.
Hæstiréttur dæmdi manninn í árslangt fangelsi. Mynd/ GVA.

Hæstiréttur staðfesti í dag ársfangelsi yfir karlmanni sem dæmdur var fyrir hrottafengna árás á þáverandi unnustu sína, sem var að hluta til framin fyrir framan dóttur hennar. Af ársfangelsi eru níu mánuðir skilorðsbundnir.

Maðurinn var ákærður að hafa farið inn í húsnæði þar sem konan var gestkomandi, togað hana út og inní bifreið, ekið með hana, dregið hana út úr bifreiðinni og slegið hana í andlit eða líkama, síðan sett hana aftur inn í bifreiðina, ekið að heimili hennar, dregið hana meðal annars á hárinu út úr bifreiðinni og inn í íbúð hennar og veist þar að henni með ofbeldi, afklætt hana og sett fingur upp í kynfæri hennar og við það sumpart notfært sér ölvunarástand hennar og slegið hana ítrekað í andlit og líkama.

Maðurinn játaði að hafa veist að konunni fyrir utan bifreiðina og veitt henni áverka. Hæstiréttur taldi að gögn og áverkar væru á konunni sem studdu það að hann hafi dregið hana nauðuga út úr bifreiðinni og meðal annars dregið hana á hárinu. Þá viðurkenndi maðurinn að hafa þreifað á kynfærum konunnar en kvað hana hafa samþykkt það með því að vera í ástarsambandi við hann. Þá var talið sannað að maðurinn hafi veist að konunni inni á salerni íbúðar hennar. Var maðurinn sakfelldur fyrir þessa háttsemi.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að maðurinn játaði að hafa veist að konunni fyrir utan bifreið sína, en einnig til þess að árásin var hrottafengin og ófyrirleitin og að hluta framin inn á heimili konunnar þar sem dóttir hennar var einnig stödd og varð vitni að fólskulegri árás á móður sína. Þá var litið til þess að um brotasamsteypu var að ræða og að ofbeldi mannsins stóð yfir í umtalsverðan tíma og var til þess fallið að niðurlægja unnustu hans og svipta hana mannlegri reisn. Loks var litið til þess að árásin hafði líkamlegar og andlegar afleiðingar í för með sér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×