Innlent

Svindl getur sýkt heilu atvinnugreinarnar

Svindl atvinnubótaþega á vinnumarkaði getur sýkt heilu atvinnugreinarnar, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann óttast að svört atvinnustarfsemi muni aukast á næstu mánuðum. Verið er að þróa sérstakt kerfi sem eykur eftirlit með starfsfólki.

Vinnumálastofnun hefur hert þann hluta af starfseminni sem sinnir eftirliti og misnotkun á bótakerfinu. Upplýsinga er aflað með ýmsum hætti og unnið er úr fjölmörgum nafnlausum ábendingum sem berast daglega um fólk sem þiggur atvinnuleysisbætur en er jafnframt í starfi.

Nokkrir atvinnurekendur sem rætt hefur verið við í dag segja að mjög sé þrýst á þá að ráða starfsmenn án þess að gefa upp laun - jafnvel gangi erfiðlega að fá fólk til starfa ef því er hafnað. Varað er við því að farin sé þessi leið, þótt sýnt sé að ekki verði unnt að koma alveg í veg fyrir það.

„En þegar svindl og brot fara yfir eitthvað mark, sem er mjög lágt, þá sýkist öll atvinnugreinin og öll viðkomandi starfsemi. Þannig að þeir sem eru að fara eftir lögum og reglum geta bara ekki keppt," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Aðspurður hvort það kunni að gerast hér á landi sagði Vilhjálmur: „Það þarf að vera mjög á varðbergi gagnvart því og það þarf að gera ráðstafanir. Því það er mjög vont ef við missum atvinnulífið og einstakar greinar þess í það að svindlararnir verði ofan á, en þeir heiðarlegu undir."

Talið er að svört atvinnustarfsemi hér á landi séu um 2 til 5%, svipað og í nágrannalöndum okkar. Verst er staðan sögð í byggingariðnaði og veitingarekstri.

Aðilar á vinnumarkaði eru nú að gera tilraun með svonefnd vinnustaðaskilríki og þróa ákveðið eftirlitskerfi með starfsfólki, meðal annars til að minnka misnotkun á bótakerfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×