Reikna út verðmiða fyrir Heiðmörkina 22. maí 2009 02:00 Þjónustuna er hægt að mæla Unnið er að rannsókn á verðgildi þjónustunnar sem náttúran í Heiðmörk veitir og liggur niðurstaðan endanlega fyrir árið 2010. Oft er sagt að náttúran sé ómetanleg. Fréttablaðið/anton „
Yfirleitt er því fleygt fram að náttúran á Íslandi sé ómetanleg. Hún er ómetanleg en við erum að meta þjónustuna sem hún veitir okkur. Á þessu er blæbrigðamunur. Streymi þjónustunnar getum við mælt en náttúran sjálf er augljóslega ómetanleg,“ segir Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Meistara- og doktorsnemar við Háskóla Íslands vinna nú að heildstæðu verðmætamati á þjónustu náttúrunnar þar sem þeir meta verðgildi þess sem náttúran veitir. Hópurinn notar Heiðmörkina sem rannsóknarvettvang. Þegar lokaniðurstaðan liggur fyrir verður ljóst hvert gildi Heiðmerkurinnar er í peningum. Þetta er fyrsta rannsóknin af þessu tagi á Íslandi. Búið er að skilgreina alla þjónustuþætti, til dæmis vötnin og útivistargildið, og verður viðurkenndum aðferðum beitt við að meta verðgildi hvers þáttar. Spurningakönnun fer fram þar sem vegfarendur um Heiðmörkina mega búast við að vera stoppaðir og spurðir hvaðan þeir komi, hvað þeir séu að gera og hvað þeir ætli að vera lengi. „Út frá þessum upplýsingum metum við hversu miklum peningum fólk er tilbúið til að eyða í Heiðmerkurferð.“ Björgólfur Thorsteinsson, formaður Landverndar, segir að miklu máli skipti að reikna út verðmæti náttúrunnar. Rýrist þessi eign þá minnki það höfuðstólinn. Taka beri tillit til þess. „Hingað til hafa menn ekki tekið þetta með í útreikninga en þeir eiga að gera það þegar þeir meta arðsemi framkvæmda. Sú staða gæti komið upp við útreikninga að framkvæmdin sé arðbær. Umhverfiskostnaðinum er þá sleppt. Ef umhverfiskostnaðinum er sleppt getur það leitt til þess að menn taki rangar ákvarðanir.“ Lokaniðurstaðan liggur fyrir árið 2010. „Þá er kominn verðmiði á Heiðmörkina,“ segir Brynhildur. „En verðgildi er alltaf svolítið afstætt. Markmiðið er að sýna fram á hið margþætta gildi náttúrunnar. Við á Íslandi höfum gleymt því en það er það sem skiptir máli. Við horfum á ár og sjáum bara megavött. Þegar hægt verður að líta heildrænt á það sem náttúran gefur verður kannski hægt að vega og meta með skynsamlegri hætti hvernig við nýtum náttúruna,“ segir hún og vonast til að rannsóknin leiði til framfara í umhverfisumræðunni. ghs@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira