Segja 2,5 milljarða gat í fjárhagsáætlun borgarinnar 6. janúar 2009 09:26 Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir.
Sjö milljarða framkvæmdir Reykjavíkurborgar eru í óvissu og tveggja og hálfs milljarða gat er í fjárhagsáætlun borgarinnar, að sögn Dags B. Eggertssonar oddvita Samfylkingarinnar og Svandísar Svavarsdóttur oddvita Vinstri grænna í borgarstjórn. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur verður tekin fyrir á fundi borgarstjórnar síðar í dag. ,,Borgarstjóri lagði fram óútfærða tillögu að 2,5 milljarða niðurskurði á lokaspretti vinnu við undirbúning fjárhagsáæltunar Reykjavíkurborgar, til að áætluninni mætti loka á núlli," segir í tilkynningu oddvitanna. Það jafngildi niðurskurði sem nemi um um 5% af rekstrarkostnaði Reykjavíkurborgar og sé sambærilegt við það ef helmingur af niðurskurði fjárlaga ríkisins væri enn óútfærður. Dagur og Svandís segja að vandanum hafi verið ýtt inn í árið og minnihlutinn hafi gert fyrirvara við þessi áform og vinnubrögð. Fjárfestingar í uppnámi Í fjárhagsáætluninni er jafnframt gert ráð fyrir sölu eigna fyrir milljarð og tekjum af úthlutun lóða og gatnagerðargjalda. ,,Hvoru tveggja getur brugðið til beggja vona. Ekki síst í ljósi þess að 7 milljarða framkvæmdir Reykjavíkurborgar sem fyrirhugaðar eru samkvæmt framkvæmdaáætlun eru í óvissu þar sem ekki hefur fengist lán til að fjármagna þær á ásættanlegum kjörum," segir í tilkynningu oddvitanna. Minnihlutinn leggur til að framkvæmdaáætlunin verði stokkuð upp og forgangsraðað í þágu mannaflsfrekra verkefna og aðgerða í atvinnumálum. Leggja sameiginlega fram tillögur Minnihlutinn í borgarstjórn leggur sameiginlega fram tillögur sem miða að því að draga úr óvissu í rekstri borgarinnar. Tillögurnar snúa að meðal annars að launajöfnuði, samráði og forgangsröðun í þágu mannaflsfrekra verkefna. Minnihlutinn vill að borgarstjórn samþykki að við útfærslu á sparnaði og samdrætti í yfirvinnu og öðrum launakostnaði sem áætlaður er allt að 1.300 milljónir króna samkvæmt tillögum meirihlutans verði sérstaklega gætt að því að ekki dragi í sundur í launagreiðslum hjá Reykjavíkurborg heldur verði eitt af markmiðum útfærslunnar að stuðla að launajöfnuði. Það felist meðal annars í því að hópar og einstaklingar með heildarlaun sem eru undir 300.000 krónur á mánuði verði að jafnaði ekki af ofangreindum samdrætti. Mikilvægt sé að borgin hafi samráð við stéttarfélög, starfsfólk, samstarfsaðila og notendur þjónustunnar. Slíkt samráð sé ekki síst mikilvægt þegar um sé að ræða 2,5 milljarða viðbótarniðurskurð sem sé en óútfærður. Minnihlutaflokkarnir vilja að framkvæmdafé verði forgangsraðað í þágu mannaflsfrekra verkefna og framkvæmdaáætlun borgarinnar verði stokkuð upp sérstaklega og lögð fram að nýju fyrir 1. mars.
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Eldur logaði í Stykkishólmi Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Sjá meira