Vann þúsund bjórdósir á Hellu 22. ágúst 2009 07:15 Kristján var að vonum sáttur með sína níu hundruð bjóra sem ættu að duga honum eitthvað fram eftir ári.Fréttablaðið/Anton
Kristján Jónsson sigraði í Bjórreið á Hellu um síðustu helgi. „Það eru níu hundruð eftir, það má alveg brúka það, halda gott partí eða eitthvað," segir Kristján Jónsson knapi, en hann sigraði í svokallaðri bjórreið sem haldin var á Hellu um síðustu helgi í tengslum við Töðugjöld. Í sigurlaun voru hundrað kassar af Egils Gulli sem gerir um þúsund bjóra, reyndar litlar dósir, en engu að síður töluvert magn af bjór. Kristján gaf strax um hundrað bjóra frá sér, andstæðingar hans, sem voru sjö talsins, fengu sinn kassann hver og svo fékk mótstjórnin einn kassa. Þannig að allir máttu una glaðir við sitt í leikslok. Kristján hélt síðan að sjálfsögðu upp á sigurinn með því að fá sér nokkra, þannig að nú eru eftir níu bretti, níu hundrað litlar dósir. Hestur Kristjáns, Bróðir, stóð svo sannarlega undir nafni líkt og segir í Njálu: ber er hver að baki nema sér bróður eigi. „Já, hann stóð sig með stakri prýði, þetta er höfðingi og stendur sig vel í öllu," segir Kristján, stoltur af gæðingnum. Knapinn er reyndar nýbyrjaður í hestum sjálfur eftir smá hlé. „Ég var í þessu þegar ég var krakki, en svo fékk maður bílpróf og fór að sinna öðrum hestöflum. Maður setti það síðan alltaf fyrir sig að það væri of dýrt að byrja en svo komst maður í þá aðstöðu að geta byrjað og þá varð ekki aftur snúið." Þótt áfengi og hestamennska hafi löngum verið óaðskiljanlegir vinir í gegnum tíðina segir Kristján menninguna hafa breyst til hins betra. „Menn eru nánast alveg hættir að vera fullir á hestbaki. En hestamönnum finnst ekkert leiðinlegt að fá sér í glas, þeir gera þetta bara núna í sitthvoru lagi."- fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira