Fékk silfrið á Mr. Gay Europe 25. ágúst 2009 05:00 Ásamt sigurvegaranum Magnús, til hægri, ásamt spænska þátttakandanum sem var krýndur Mr. Gay Europe 2009. Magnús hafnaði í öðru sæti.
Magnús Jónsson, 25 ára gamall nemi í Kaupmannahöfn, hafnaði í öðru sæti í árlegri Mr. Gay Europe-keppni sem að þessu sinni var haldin í Osló. Sætið tryggir Magnúsi keppnisrétt í Mr. Gay World sem einnig verður í Osló í febrúar á næsta ári. „Þetta var alveg rosalega skemmtilegt, við vorum 24 keppendur frá jafnmörgum löndum og þetta var mikil upplifun, ég lærði heilmikið af þessu,“ segir Magnús en skipuleggjendur keppninnar hringdu í Magnús og báðu hann um að taka þátt. „Ég sendi inn fyrirspurn fyrir fimm árum og óskaði eftir því að fá að vera með. Þegar svo kallið kom þá var ég að byrja í sambúð og gaf þetta frá mér. En þeir mundu eftir mér og vildu fá mig enda hafði enginn Íslendingur skráð sig til leiks,“ segir Magnús en hann mun nú ferðast um hin Norðurlöndin og fræða fólk um öruggt kynlíf og samkynhneigð. Magnús á íslenska móður en föður frá Mexíkó þar sem kaþólsk trú hefur sterk ítök og eru samkynhneigðir oft litnir hornauga af þeim sökum. Engu að síður hefur fjölskylda Magnúsar stutt dyggilega við bakið á honum og hún var ánægð með árangurinn. „Já, bróðir pabba lést langt fyrir aldur fram úr eyðni, hann var hommi og fékk því litla hjálp á þeim tíma. Hann er eiginlega aðalástæðan fyrir því að ég vildi gera þetta, ég vil vera góð fyrirmynd, tala um öruggt kynlíf fyrir opnum tjöldum og heiðra þannig minningu frænda míns,“ segir Magnús og upplýsir jafnframt að fyrir næstu keppni verði haldin undankeppni hér á Íslandi.-fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira