Þingmenn Samfylkingarinnar deildu um Tónlistarhúsið 20. maí 2009 16:09
Þingmenn Samfylkingarinnar deildu á Alþingi í dag um hvort að hætta eigi við byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins í núverandi mynd. Steinunn Valdís Óskarsdóttir sagði að það væri algjört glapræði að slá framkvæmdunum á frest. Sigmundur Ernir Rúnarsson sagði aftur á móti að huga verði að fólki frekar en fasteignum. Í gær vakti Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum ráðherra, máls á nauðsyn þess að leggja núverandi áætlanir um húsið til hliðar og skoða uppbygginguna upp á nýtt. Taka verði mið af forsendum í efnahagslífi þjóðarinnar. Í umræðum á þingi í dag sagði hún brýnt að þingheimur og borgaryfirvöld skoði hvort ekki sé rétt að fresta framkvæmdunum. Sigmundur Ernir tók undir með Þórunni og kvaðst afar jákvæður fyrir því að málefni hússins verði endurskoðuð. „Ég held að við þurfum í komandi aðgerðum að hugsa fyrst og fremst um fólk frekar en fasteignir," sagði þingmaðurinn. Steinunn Valdís sagðist vera ósammála flokkssystkinum sínum. Afstaða hennar byggi fyrst og fremst á því að um væri að ræða afar stóra framkvæmd sem nú þegar væri búið að setja mikla fjármuni í. Hún sagði framkvæmdirnar atvinnuskapandi og að það væri mikilvægt fyrir atvinnustigið í landinu halda þeim áfram. „Ég tel það algjört glapræði við þessar aðstæður að slá þessari framkvæmd á frest út frá atvinnustiginu og ekki síst vegna þess að gríðarlegur kostnaður er þegar tilfallinn vegna verkefnisins. Ég fullyrði að það verði mun dýrara fyrir þjóðarbúið að slá framkvæmdinni á frest heldur en að halda henni áfram," sagði Steinunn Valdís. Guðbjartur Hannesson, þingmaður flokksins og formaður fjárlaganefndar, sagði rétt að þingmenn ræði hvort að fresta eigi framkvæmdunum. Hann gaf þó ekki upp sína afstöðu í málinu.
Tengdar fréttir Hætt verði við byggingu Tónlistarhússins í núverandi mynd Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum ráðherra, segir að við núverandi aðstæður í efnahagsmálum sé skynsamlegt að leggja núverandi áætlanir Tónlistar- og ráðstefnuhús til hliðar og skoða uppbygginguna upp á nýtt. 18. maí 2009 10:53 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira
Hætt verði við byggingu Tónlistarhússins í núverandi mynd Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum ráðherra, segir að við núverandi aðstæður í efnahagsmálum sé skynsamlegt að leggja núverandi áætlanir Tónlistar- og ráðstefnuhús til hliðar og skoða uppbygginguna upp á nýtt. 18. maí 2009 10:53