Brjálaður laugardagur hjá atvinnumönnunum okkar 26. júní 2009 06:00 Hermann Hreiðarsson er fjörugur og flottur.
Óhætt er að fullyrða að „atvinnumennirnir okkar" í boltaíþróttum hafi úr nægu að velja hvað skemmtanalífið varðar á morgun, laugardag. Og sumir eiga jafnvel eftir að eiga í fullt í fangi með að velja og hafna milli tveggja góðra kosta. Tveir íslenskir landsliðsmenn ganga í það heilaga, tvær silfurstjörnur fagna því að gelið þeirra er loks til sölu og landsliðsfyrirliði heldur stjörnugolfmót í Vestmannaeyjum. Grétar Rafn Steinsson, leikmaður Bolton og íslenska landsliðsins, gengur að eiga Manúelu Ósk um helgina. Um svipað leyti ganga þau Róbert Gunnarsson, línumaður íslenska landsliðsins í handbolta, og unnusta hans, Svala Sigurðardóttir, inn kirkjugólfið og láta pússa sig saman. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Róbert þó eingöngu boðið nánum vinum úr landsliðinu og því ættu Logi og Björgvin ekki að þurfa að kvíða því að eitthvert verulegt brottfall verði úr þeim hópi. En hlutirnir eru eilítið flóknari hjá landsliðsmönnunum í fótbolta því í Vestmannaeyjum verður góðgerðarmótið Herminator Invitational, golfmót landsliðsfyrirliðans Hermanns Hreiðarssonar. En þangað eiga meðal annars að koma knattspyrnulandsliðsmennirnir Eiður Smári Guðjohnsen, Rúrik Gíslason, Brynjar Björn Gunnarsson og Heiðar Helguson auk Ívars Ingimarssonar. Ólafur Stefánsson handboltaséní verður einnig meðal þátttakenda og því óvíst hvort hann nái gleði þeirra Loga og Björgvins. Eins og komið hefur fram mun enski landsliðsmaðurinn Sol Campbell einnig leika golf í veðurblíðunni í Eyjum en það ku vera eini atburðurinn sem hann er boðinn í á laugardeginum. Mótið hefst um hádegi og sérstök verðlaunaafhending fer fram um kvöldið. Hermann vildi sem minnst um þessa skörun ræða en sagðist vissulega vera með boðskort frá Grétari og Manúelu. Enda fyrirliði landsliðsins. „Þeir sem eiga að mæta í brúðkaupið reyna auðvitað að ná því," segir Hermann sem sagðist sjálfur ætla að reyna að vera á báðum stöðum, ef til vill með hjálp þyrlu, en viðurkenndi að hann væri vissulega í erfiðri stöðu. „Maður getur ekki bara hlaupið frá gestunum sínum," segir Hermann.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira