Innlent

Handtekinn með vírklippur: Reyndi að brjótast inn á Litla-Hraun

Fangelsið á Litla-Hrauni.
Fangelsið á Litla-Hrauni.

Tveir gistu fangageymslur lögregunnar á Selfossi. Annar mannanna var handtekinn fyrir utan fangelsið á Litla-Hrauni með vírklippur. Fangaverðir urðu mannsins varir í eftirlitsmyndavélakerfi fangelsins þar sem hann reyndi að klippa gat á girðinguna, sem honum tókst að einhverju leyti. Hann var síðan handtekinn í nágrenni fangelsins og settur í fangaklefa á Selfossi.

Að sögn lögreglun eru fjölmörg dæmi þess að menn hafi reynt að brjótast út úr fangelsinu en engum hefur tekist að brjótast þar inn. Tveir menn voru síðan teknir grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna.

Þá var einn maður handtekinn í Hveragerði í nótt grunaður um að hafa veist að tveimur konum. Veitti hann annarri konunni áverka svo á sá. Hann gistir einnig fangageymslur lögreglunnar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir nóttina hafa verið rólega þó talsverður fjöldi hafi skemmt sér í miðbæ Reykjavíkur. Sex gista fangageymslur lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×