Tíu þúsund manns flýja skógarelda á Grikklandi Guðjón Helgason skrifar 23. ágúst 2009 12:50
Fjölmörg heimili norðaustan Aþenu, höfuðborgar Grikklands, urðu skógareldum að bráð í nótt og í morgun. Illa gengur að ná tökum á eldunum. Grískt yfirvöld fyrirskipuðu í morgun að tíu þúsund manns skyldi flytja á brott frá heimilum sínum. Skógareldarnir kviknuðu í fyrrakvöld í þorpi um fjörutíu kílómetrum norðaustur af grísku höfuðborginni. Vindasamt var á svæðinu og varð það til að eldarnir breittust hratt út og til nærliggjandi þorpa rétt fyrir utan Aþenu og einni til úthverfa í norðaustur hluta borgarinnar. Sökum þess hve hvass hefur verið hefur slökkviliðsmönnum gengið illa að ná tökum á eldunum. Í nótt brunnu fjölmörg heimili nærri borginni og stór ræktarlönd urðu eldnunum að bráð. Mörg hundruð íbúar á svæðinu flúðu heimili sín í nótt. Þykkur reykjarmökkur liggur nú yfir hluta grísku höfuðborgarinnar. Grísk yfirvöld hafa lýst yfir neyðarástandi í Austur-Attiku sem hluti Aþenu tilheyrir. Þar hafa rétt ríflega hundrað og tuttugu ferkílómetrar af skóglendi og ólífuræktarlandi brunnið. Grikkir hafa beðið bandamenn um aðstoð í baráttunni við eldana og er í dag búist við fimm flugvélum frá Frakklandi, Ítalíu og Kýpur sem nota á ásamt grískum flugvélum og þyrlum til að kasta vatni á logana. Skógareldar eru tíðir í Grikklandi á sumrin þegar hitnar í veðri og þurrt er. Eldarnir nú vekja sárar minningar frá því fyrir tveimur árum þegar sextíu og fimm manns fórust í mannskæðustu skógareldum í landinu í manna minnum.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Sjá meira