Dæmdur í endurkomubann og hélt atvinnleysisbótum allan tímann 8. október 2009 12:53 Rucinskis situr í gæsluvarðhaldi. Var alltaf á atvinnuleysisbótum.
Litháinn Algis Rucinskis, sem rauf fimm ára endurkomubann fyrir stuttu, var dæmdur í 70 daga fangelsi fyrir brotið í Héraðsdómi Reykjavíkur í hádeginu. Algis er búinn að vera á atvinnuleysisbótum allan tímann sem hann var í endurkomubanninu og svo virðist sem Vinnumálastofnun hafi aldrei tekið hann út af listanum þrátt fyrir að hann hafi verið erlendis og ekki mátt snúa aftur til landsins næstu fimm árin. Algis var dæmdur fyrir hrottalega árás á lögreglumann á síðasta ári og situr nú í gæsluvarðhaldi. Hann var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í desember á síðasta ári en var sleppt á reynslulausn þegar hann átti fjörutíu daga óafplánaða. Honum var í kjölfarið vísað af landi brott og dæmdur í fimm ára endurkomubann sem hann rauf. Árás Algis á lögreglumanninn þótti fólskuleg, ógnvekjandi og brotavilji hans einbeittur. Hann fékk þrjátíu daga fangelsi fyrir að rjúfa endurkomubannið. Þá bættust við fjörtíu dagar sem hann átti eftir að afplána vegna árásarinnar á lögreglumanninn. Algis var á atvinnuleysisskrá þegar hann var dæmdur fyrir brot sín. Hann virðist ekki hafa verið tekinn af skrá þrátt fyrir að hafa verið vísað úr landi og bannað að koma hingað í fimm ár. Sjálfur á Algis átján ára kærustu hér á landi og nýfætt barn. Hann rauf endurkomubannið til þess að hitta þau. Hann framvísaði eigin skilríkjum þegar hann kom til landsin, engu síður var hann ekki stoppaður. Hann hefur tekið áfrýjunarfrest en mun sitja í gæsluvarðhaldi áfram.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira