Innlent

Boðað til mótmæla við Alþingishúsið á morgun

Hópurinn vill meðal annars vekja athygli á máli Mansris Hischem.
Hópurinn vill meðal annars vekja athygli á máli Mansris Hischem.

Facebook hópur undir yfirskriftinni „Veitum flóttamönnum skjóta og sanngjarna málsmeðferð!" efnir til mótmæla við Alþingi á morgun, á meðan á þingsetningu stendur. Þingsetning hefst klukkan hálftvö.

Í tilkynningu frá hópnum segir að ástæðan sé „vægast sagt slæma framkoma sem íslensk stjórnvöld veita og hafa veitt flóttamönnum undanfarin ár."

Yfirskrift mótmælanna er „Hvað um Hichem" og er það vísun í mál hælisleitandans Mansris Hichem sem er búinn að vera í hungurverkfalli í 21 dag til þess að vekja athygli á málstað sínu.

Hér má skrá sig í hópinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×