Innlent

Brotist inn í sex bíla í gær

Nokkuð hefur verið um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu en sex slíkar tilkynningar bárust lögreglunni í gær. Fjórir bílanna voru í Reykjavík en tveir í Kópavogi.

Að sögn lögreglu var fartölva, Ipod, talstöð, geislaspilari og vegabréf á meðal þess sem þjófarnir höfðu upp úr krafsinu. Lögreglan vill ítreka að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.

Þá var þremur reiðhjólum stolið í borginni í gær. Tvö voru tekin í Laugardalnum og eitt í Hlíðunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×