Telja myntsamstarf milli Íslands og Noregs vera óraunhæft 26. febrúar 2009 19:22
Formaður Samfylkingarinnar og formaður norska Verkamannaflokksins telja báðir að horfast verði í augu við þá staðreynd að gjaldmiðlasamstarf Íslands og Noregs sé óraunhæft. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samfylkingunni vegna fundar sem þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jens Stoltenberg áttu við Bláa Lónið í dag. Í tilkynningu frá Samfylkingunni kemur fram að formennirnir hafi verið sammála um að rætur fjármálakreppunnar liggi í græðgi og skorti á markvissum leikreglum og eftirliti. Mat þeirra sé að kreppan muni vara nokkurn tíma og að ekkert land verði með öllu ósnert af áhrifum hennar. Til að afstýra slíkum kreppum í framtíðinni þurfi að efla alþjóðlegt samstarf og regluverk. Slíkt sé í anda jafnaðarstefnunnar sem telji markaðinn öfluga leið til að leysa mörg verkefni en megi samt ekki stjórna ferðinni alfarið á kostnað annarra samfélagslegra gilda. Markaðurinn sé ágætur þjónn en afleitur herra. Þá sé lögð sérstök áhersla á að efla félagslegar lausnir á borð við velferðarkerfið til að mæta afleiðingum fjármálakreppunnar fyrir heimilin. Ingibjörg Sólrún lagði áherslu á að styrkur hins norræna samstarfs hafi komið í ljós í viðbrögðunum við gjaldeyris- og bankakreppunni á Íslandi. Fyrir það séu Íslendingar þakklátir. Böndin séu ekki síst sterk þegar systurflokkar fara með forystu í ríkisstjórnum og deili sýn á grundvallaratriði og lausnir. Nú þurfi að skilgreina stöðuna og áætlun um endurreisn.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira