Hrunið tólffaldaði söluna 4. nóvember 2009 04:00 útflutningsvörur Árni Jón Sigfússon og Sófus Gústavsson senda meðal annars lýsi, pylsur og nammi til útlanda. Allt íslenskt að sjálfsögðu.fréttablaðið/vilhelm „
Það er búið að vera hreint út sagt bilun að gera,“ segir Sófus Gústavsson, framkvæmdastjóri Nammi.is. Gengisfall íslensku krónunnar hefur hleypt miklu lífi í útflutning á íslenskri vöru. Vefverslunin Nammi.is fór úr því að selja nánast eingöngu sælgæti yfir í útflutning á vörum eins og lýsi, lopa og tónlist. „Við misstum alveg námsmennina í útlöndum, sem var reiðarslag í byrjun, en söluaukningin var það gríðarleg að það skiptir okkur kannski engu máli í dag. Við tólffölduðum fyrirtækið,“ segir Sófus. Hann sendir vörur um allan heim, en þessa dagana er mest sent alla leið til Asíu. „Lýsisvörurnar eru gríðarlega vinsælar í Asíu,“ segir hann. Íslenskur matur er vinsæll á Nammi.is, en Sófus segir að sælgætið sé alltaf pantað með. „Við erum með íslenskan mat, skyrið, lambakjöt og hangikjöt,“ segir hann. „Það er rosalega mikil sala í því núna. Útlendingar eru sérstaklega hrifnir af hangikjötinu – og þeir kaupa líka malt og appelsín.“ Nú líður að jólum og Sófus býst við að það hleypi enn þá meira lífi í söluna. „Um jólin má búast við því að útlendingar kaupi jólagjafirnar hjá okkur. Það er auðvitað algjör snilld.“ Nammi.is var með eitt og hálft stöðugildi fyrir tveimur árum, en í dag eru þrír í fullu starfi ásamt fjölda fólks í alls kyns íhlaupastörfum. Síðunni var breytt og vöruúrvalið aukið í kjölfar bankahrunsins, þegar salan tók hressilega við sér. „Útlendingarnir vildu kaupa meira af íslenskri vöru og þá hófum við að selja vörur sem voru ekki áður í boði á síðunni,“ segir Sófus. „Nammi.is byrjaði fyrst og fremst sem nammisala.“ Nýjasta varan á síðunni í dag er hinn rammíslenski lopi, en Sófus segir að gríðarleg eftirspurn sé eftir honum: „Bæði lopi og lopapeysur. Salan er miklu meiri en við bjuggumst við.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira