Innlent

Skattrannsóknarstjóri rannsakar dótakassa FL Group

Dótakassi FL Group er á meðal þess sem Skattrannsóknarstjóri hefur til athugunar í rannsókn sinni á félaginu. Í dótakassanum er meðal annars 400 hestafla BMW bifreið, snjósleðar og fjórhjól.

Eins og fram hefur komið hefur skattrannsóknarstjóri verið með umsvif FL Group til skoðunar undanfarna mánuði. Eitt af því sem dúkkað hefur upp í þeirri rannsókn er einkahlutafélagið J-Einnátta.

Ef hlutafélagaskrá er skoðuð sést að félagið er skilgreint sem fyrirtæki í farþegaflutningum. En ekki venjulegum farþegaflutningum. Á félagið eru skráðir lúxusbílar á borð við rúmlega 400 hestaafla BMW , forláta Mercedes Benz bifreið, fjórhjól, snjósleðar og fleira í þeim dúr.

Okkur lék forvitni á að vita nákvæmlega hvað það væri sem þetta fyrirtæki gerir. Forsvarsmaður þess Jón Þór Sigurðarson var þögull sem gröfin þegar fréttastofa hafði samband við hann í dag. Hann staðfesti þó að hann hefði unnið töluvert fyrir FL Group.

Samkvæmt heimildum fréttastofu fólst þessi vinna aðallega í að skaffa FL Group einkabílstjóra. Sem ók síðan starfsmönnum og viðskiptamönnum þess um bæinn eftir þörfum. Inn í þessari þjónustu voru svo innifalin afnot af snjósleðum, fjórhjólum og örðu slíku. Líkt og fram kemur í DV í dag voru faratækin svo geymd í bílakjallara á vegum Hannesar Smárasonar í Skeifunni.

Samkvæmt ársreikningum J-Einnátta ehf. var útseld vinna Jóns Þórs á árunum 2006 og 2007 um 140 milljónir króna. Stjórnendur FL Group hafa einmitt verið harðlega gagnrýndir fyrir háan rekstarkostnað en á þessu sama tímabili og félagið notfærði sér lúxusbílaþjónustu J-einnátta var rekstarkostnaðurinn eitthvað í kring um 9 milljarðar króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×