Innlent

Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-EIR var kölluð út um klukkan tuttugu mínútur yfir sex í kvöld vegna fjórhjólaslyss sem varð í Skorradal. Var ökumaður hjólsins meðvitundarlaus og beðið var um aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar þar sem erfitt var að komast að slysstaðnum vegna brattlendis. Lenti þyrlan á áttunda tímanum í kvöld við Landspítalann í Fossvogi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×