Lausn deilunnar um Icesave ein af forsendum endurreisnar 26. febrúar 2009 12:14 Össur Skarphéðinsson, utanríkis- og iðnaðarráðherra.
Að mati núverandi ríkisstjórnarinnar er lausn Icesave-deilunnar með aðstoð alþjóðasamfélagsins og þeirra ríkja sem næst okkur standa ein af forsendum endurreisnar íslensks efnahagslífs. Þetta kemur fram í svari Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, og birt var á Alþingi í dag. ,,Því má ekki gleyma að samkvæmt hinum umsömdu viðmiðum sem samþykkt voru í Brussel skal í viðræðunum ,,tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt“. Verði slíkt ekki gert munu samningar ekki nást," segir Össur í svarinu. Siv spurði Össur hvort hann hefði látið skoða á innlendum eða erlendum vettvangi hvort Íslendingum beri lagaleg skylda til að greiða Icesave-ábyrgðirnar. Jafnframt hvert mat hans væri á stöðu Íslands ef Íslendingar borgi eða borgi ekki ábyrgðirnar. Össur segir að fyrir liggi allnokkur fjöldi lögfræðilegra álitsgerða sem unnar hafa verið bæði af innlendum og erlendum aðilum að beiðni utanríkisráðuneytisins og á vegum ríkisstjórnarinnar vegna Icesave. ,,Eins liggja fyrir álitsgerðir Breta, Hollendinga og Evrópusambandsins. Í þessum greinargerðum eru reifuð ýmis sjónarmið er lúta að ábyrgð ríkisins. Utanríkisráðuneytið og þau ráðuneyti önnur sem koma að Icesave-viðræðunum hafa kynnt sér efni þessara greinargerða gaumgæfilega og stuðst við þær í viðræðunum. Rétt er að taka fram að þær standa enn yfir og því takmörkunum bundið hversu ítarleg svör er hægt að gefa í svari sem þessu," segir Össur.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira