Innlent

Ítarlegasti stjórnarsáttmáli í árafjöld

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Ýmis nýmæli eru í stjórnarsáttmálanum sem er einhver sá ítarlegasti á síðari árum. Þar er gert ráð fyrir bráðaaðgerðaáætlun í tíu liðum til að sporna við atvinnuleysi. Beinharðar hugmyndir um niðurskurð í ríkisbúskapnum eru ekki tíundaðar og leiðrétting á skuldum heimilanna er ekki í pípunum.

Stjórnarsáttmálinn hefur á síðari árum ekki verið meira plagg, hann er upp á sautján síður og skiptist í jafnmarga kafla. Líkt og oft áður er sáttmálinn almennt stefnuplagg og beinar aðgerðir ekki tíundaðar í smáatriðum. Að frátöldum umdeildustu málunum, um innköllun kvóta og Evrópusambandið, er þó sitthvað sem hönd er á festandi.

Engar beinar aðgerðir eru kynntar í sáttmálanum til að leysa úr skuldavanda fyrirtækja og engar nýjar aðgerðir kynntar til að leysa skuldavanda heimilanna. Ekkert bendir til þess að háværri kröfu um leiðréttingu fasteignalána verði mætt en þó segir að þegar Seðlabankinn hefur lokið úttekt á skuldum og tekjum heimilanna verði þörfin á frekari aðgerðum metin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×