Rannveig Rist kærði sýruárásina 3. október 2009 18:30
Ætandi lakkleysir lenti rétt undir auga Rannveigar Rist forstjóra álversins í Straumsvík eftir árás skemmdarvarga á heimili hennar og fjölskyldubíl. Hefði getað farið verr, enda baneitrað efni að mati kunnugra. Rannveig kærði árásina til lögreglu. Fimmta ágúst síðastliðinn í skjóli nætur var grænni málningu skvett á heimili Rannveigar Rist í Garðabænum. Fjöldi forkólfa útrásarinnar hafði þá áður fengið slíkar rauðar slettur á hús sín en Rannveig sem ekki telst til útrásarvíkinga var önnur í röð þeirra sem starfa við stóriðju til að verða fyrir eignaspjöllum. Viku fyrr hafði verið skvett á hús Friðriks Sophussonar og skömmu síðar var grænni málningu einnig skvett á heimili Hjörleifs Kvaran forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Árásin á heimili Rannveigar var hins vegar ólík þeim fyrri, því fjölskyldubíll hennar hafði verið baðaður í ætandi efni, lakkleysi að því er talið er. Þegar Rannveig kom út morguninn eftir skemmdarverkið og opnaði dyrnar að fjölskyldubílnum skvettist efnið úr hurðafalsinu á andlit hennar svo sársveið undan. Fréttastofa náði tali af Rannveigu í dag en hún vildi ekkert tjá sig um þetta atvik. Hún kærði málið til lögreglu sem vildi ekkert tjá sig heldur um framgang rannsóknarinnar þegar eftir því var leitað í dag. Árásin á Rannveigu mun hins vegar skilja eftir sig ör í andliti hennar og mildi þykir að efnið skuli ekki hafa lent í auga hennar en það er ákaflega ætandi og samkvæmt upplýsingum frá eitrunarmiðstöð Landspítalans hefði það getað valdið blöðrum og brennt slímhúð augans.
Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Sjá meira