Þjóðin losnar ekki við mig 3. október 2009 06:15 Kominn til að vera. Von er á nýjum gamanþáttum með Steinda Jr. í byrjun næsta árs. Hann segir að íslenska þjóðin losni ekki við hann á næstunni.
Gamansketsar Steinda Jr. sem sýndir voru á Skjáeinum í sumar gerðu piltinn að einum vinsælasta grínista landsins á mjög skömmum tíma. Fréttablaðið yfirheyrði þennan dreng sem er stoltur af því að búa í Mosfellsbæ. Hægt er að finna fjölda myndbrota með Steinda, sem réttu nafni heitir Steinþór Steinþórsson, á vefsíðunni Youtube.com, þar á meðal er gamalt myndskeið frá árinu 1999 þar sem Steindi gerir sofandi móður sinni ljótan grikk. Aðspurður segist hann hafa tekið upp gamanefni frá því að hann var smá gutti. „Ég hef verið að taka upp sketsa frá því að ég man eftir mér og myndbandið með mömmu var það fyrsta sem ég gerði. Ég hafði keypt mér nýja myndavél fyrr um daginn sem þurfti að hlaða í marga klukkutíma og þegar hún var fullhlaðin ákvað ég að vekja mömmu með þessum hætti. Ég skráði myndina í stuttmyndakeppni Skjáseins og Hins hússins sama ár og hún var valin „Frumlegasta myndin“ og var send ásamt hinum sigurmyndunum á einhverja kvikmyndahátíð í Berlin. Ég veit samt ekkert hvað varð um hana.“Byrjar daginn á bjórSteindi vinnur nú að nýju efni ásamt Ágústi Bent, sem klippti og framleiddi gamanþættina fyrir Mónitor, fyrir nýjan þátt sem sýndur verður á Skjáeinum í janúar á næsta ári. Þátturinn hefur hlotið nafnið Steindinn okkar og verður að sögn Steinda ferskur og hárbeittur. „Þegar við Ágúst Bent unnum að þáttunum fyrir Mónitor töluðum við um að reyna að komast að með okkar eigin þátt. Þetta verður ferskur og beittur þáttur með skemmtilegum karakterum og tónlistaratriðum,“ útskýrir Steindi sem er að eigin sögn algjörlega takt- og laglaus. Tökur á þáttunum hefjast 17. október og að sögn Steinda hefur gengið vel að semja handritið að þáttunum. „Þetta er búið að vera algjört letilíf sem við höfum lifað. Við byrjum daginn yfirleitt á því að sturta í okkur nokkrum bjórum til að liðka okkur og svo keðjureykir maður ofan í það. Við sitjum svo og köstum á milli okkar hugmyndum að efni allan daginn. Það er nokkur pressa sem fylgir þessu því við verðum að skrifa ákveðið marga sketsa á dag til að eiga nógu mikið efni fyrir þáttinn. Við komum með kannski þrjátíu nýjar hugmyndir á dag, en mikið af því er ónothæft kjaftæði.“ Kyntákn með bumbuAðspurður segist Steindi ekki finna fyrir auknum vinsældum sínum og vill ekki kannast við það að vera orðinn frægur. „Mér finnst ég ekkert vera frægur. Það er helst að maður verði var við að unglingar horfi á mann úti á götu eða að drukkið fólk komi og spjalli við mann. En ég hef bara gaman af því.“ Auk þess að vera orðinn þekkt andlit hélt fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Mónitors því eitt sinn fram að Steindi væri kyntákn sinnar kynslóðar. Spurður út í þau ummæli segist Steindi algjörlega ósammála. „Ef það að vera kyntákn þýðir að vera lágvaxinn með úfið hár og bumbu, þá já, þá er ég mikið kyntákn.“ Vinsældir Steinda urðu til þess að stofnaður var hópur á samskiptavefnum Fésbók þar sem óskað var eftir því að Steindi yrði fenginn í hóp þeirra leikara sem fara með hlutverk í áramótaskaupi Sjónvarpsins. „Mér fannst mjög gaman að heyra af þessu enda er þetta mikið hrós.“ Inntur eftir því hvort hann muni taka að sér hlutverk standi það til boða segir hann það fara eftir ýmsu. „Ef handritið er gott þá mundi ég að sjálfsögðu gera það, en ég mundi ekki taka að mér að leika hvað sem er. Ég mundi til dæmis ekki leika Davíð Oddsson og vera með krullur eða eitthvað álíka ógeðslegt.“ Keyrir um á drusluTalið berst frá Davíð Oddssyni að efnahagsástandinu og segist Steindi hafa sloppið ágætlega frá bankahruninu. Hann ekur um á gömlum bíl og keypti sér íbúð í Mosfellsbæ á hagstæðum lánum. „Ég slapp nokkuð vel. Ég tók engin myntkörfulán og keyri um á heimsins mestu druslu sem ég þarf reglulega að ýta í gang og er alltaf að bila.“ Spurður út í IceSave-samninginn og afsögn Ögmundar Jónassonar segist Steindi lítið velta sér upp úr pólitík. „Ég veit ekki með þessa pólitík í dag, mér finnst hún vera algjört djók. Þetta er allt saman bara algjört djók.“ Spurður út í framtíðaráform sín segir Steindi að þau séu enn óráðin. „Ég veit ekki nákvæmlega hvað ég tek mér fyrir hendur í framtíðinni, en ég ætla alveg örugglega ekki í lögfræði. Skemmtilegast þykir mér að skrifa og leiklistin höfðar einnig til mín. Það gæti vel verið að maður leggi hana fyrir sig í framtíðinni,“ segir Steindi. „Þegar tökum á Steindanum okkar er lokið langar mig líka að prófa að skrifa uppistand og fara á smá flakk með það. En ég er kominn til að vera, það er alveg víst. Þjóðin er ekkert að fara að losna við mig. Þetta er bara rétt að byrja.“ sara@frettabladid.is
Mest lesið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Sjá meira