Rauðari Fabúla á nýrri plötu 3. október 2009 04:15 Útgáfutónleikar á þriðjudaginn. Margrét Kristín Sigurðardóttir, Fabúla, með trommu á bakinu. Mynd/Börge Wigum
Ný plata með Fabúlu, In Your Skin, kemur út í lok október. „Platan var tekin upp niðri við höfn í Hafnarfirði í hljóðveri Rafnsbræðra, Error, við vængjaþyt og fiskiilm," segir Margrét Kristín Sigurðardóttir, Fabúla. „Platan dvelur meira við léttu hliðar lífsins frekar en þær angurværu eins og síðasta platan, Dusk, gerði. Dusk var blá, en þessi rauðari." Plötuna tileinkar Margrét foreldrum sínum, þeim Jóhönnu G Möller og Sigurði Pálssyni. „Það er eitt lag til hvors þeirra á plötunni. „Ból mitt" heitir mömmu-lag og hefst inni í henni - en bólið hefur enn merkingu, því hjá henni er eilífur griðastaður. Ég ólst upp vestast í vesturbænum með móa, tjarnir, fjöru, torfæruhóla og öskuhauga sem leiksvæði. Dagarnir voru samfellt ævintýri og heima beið mamma brosandi með faðminn útbreiddan. Lagið er óður til hennar fyrir að vera þessi vermandi eldur, en eira samt svo lengi á sama stað." Margrét segir „pabba-lagið" heita „í gegnum glerið" - „Við pabbi sáumst fyrst í gegnum gler. Mamma fékk blóðtappa í kjölfarið á fæðingunni, svo við mæðgurnar þurftum að vera nokkrar vikur á sjúkrahúsi. Í þá daga fengu feðurnir ekki að snerta börnin sín á fæðingardeildinni, aðeins að horfa á þau í gegnum gler. „Í gegnum glerið" fann ég fyrir hlýrri nærveru hins dökkhærða manns og fann að hjarta mitt var gróðursett í hjarta hans." Næstkomandi þriðjudag heldur Fabúla „forútgáfutónleika" á Rósenberg og hefjast þeir klukkan 21. Með henni leika Birkir Rafn Gíslason á gítar, en hann vann nýju plötuna með Margréti, Jökull Jörgensen á bassa, Scott McLemore á trommur, Margrét Árnadóttir á selló og Unnur Birna Björnsdóttir á fiðlu. Fyrsta lagið af plötunni, „Monster", má nú heyra á myspace.com/fabulaband. - drg
Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið Ískaldir IceGuys jólatónleikar Lífið Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt Lífið Fleiri fréttir Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Sjá meira