Hrólfi hrósað 5. nóvember 2009 06:00 tónlist Hrólfur Sæmundsson lengst til hægri í hlutverki sínu í Achen. mynd Wil van Lersel.
Pelleas og Mélisande með Hrólf Sæmundson í titilhlutverkinu slær í gegn hjá gagnrýnendum í þýskalandi. Uppsetning óperunnar í Aachen á Pelléas og Mélisande eftir Claude Debussy hefur heldur betur slegið í gegn hjá gagnrýnendum í þýskalandi, en það er Hrólfur Sæmundsson sem fer með annað titilhlutverkið, hlutverk Pelléasar. Hrólfur hóf nýverið störf við óperuna í Aachen, og syngur þar í vetur, auk hlutverks Pelleasar, hlutverk Papagenós í Töfraflautunni, og Fords í Falstaff eftir Verdi. Að auki var honum nýverið boðið titilhlutverk óperunnar Évgení Onegin eftir Tsjaíkovskí sem sett verður upp á næsta ári. Hér að neðan eru brot úr umfjöllunum fjölmiðla um sýninguna Pelléas og Mélisande, en hún var frumsýnd sunnudaginn 25. október og verður sýnd út leikárið. Grenzland tímaritið segir: „Síðasti fundur elskendanna, áður en Golaud drepur bróður sinn, er raddlegur hápunktur sýningarinnar: Michaela Maria Mayer og Hrólfur Sæmundsson svífa milli fagurfræðilegs formleika og lýrískrar ákefðar. List söngvaranna og blæbrigðaríkur leikur hljómsveitarinnar heillaði áhorfendur.“ Gagnrýnandi WDR útvarpsstöðvarinnar segir í umsögn sinni: „Hljómsveitarstjórinn Marcus R. Bosch leiddi hljómsveitina gegnum þetta dularfulla og ótrúlega margræða verk á þann hátt að hafið er yfir allan efa að Sinfóníuhljómsveit Aachen var vandanum vaxin og meira til; það var sko ekki að ástæðulausu að fullur salur hyllti hljómsveit og stjórnanda hennar. Söngvararnir höfðu greinilega allir unnið heimavinnu sína, þar var fremstur í flokki ungur söngvari sem steig þar í fyrsta sinn á óperusviðið í Þýskalandi, Hrólfur Sæmundsson. Rödd hans hafði fagran dökkan blæ þrátt fyrir hæðina sem hlutverkið krefst, nokkuð sem hentaði þessu dulúðlega verki ákaflega vel. …Áhorfendur voru stórhrifnir, og fagnaðarlætin voru óvenju mikil, ekki síst með tilliti til þess að oftast hrífur þessi ópera aðeins sérfræðingana, en ég hef það á tilfinningunni að í Aachen verði þetta ópera fólksins.“- pbb
Mest lesið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Lífið Fleiri fréttir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Sjá meira