Aldraðir og fatlaðir til sveitarfélaganna 18. maí 2009 05:30 Stjórnarflokkarnir sömdu sín á milli um flutning verkefna aldraðra og fatlaðra til sveitarfélaga í stjórnarsáttmálanum. Það er í samræmi við vilja sveitarfélaganna. fréttablaðið/teitur „
Sveitarfélög verði efld með flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga á sviði málefna fatlaðra, aldraðra og heilbrigðisþjónustu.“ Þannig segir í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Viðræður á milli ríkis og sveitarfélaga hafa lengi staðið yfir og sveitarfélög hafa sent frá sér samþykktir í þá veru að þetta verði að veruleika. Úr því að málið er komið í stjórnarsáttmálann er því ekkert til fyrirstöðu að það verði að veruleika. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir mikinn áhuga hjá sveitarfélögum fyrir þessu og landsþing hafi ályktað í þá veru. Það sé þó háð því að nægir fjármunir fylgi verkefninu. Halldór segir málið hafa verið langt komið í ráðherratíð Páls Péturssonar en þá hafi strandað á því að ríkisvaldið hafi ekki viljað setja endurskoðunarákvæði inn í samninginn hvað fjárhagsliði varðar. Nú hafi menn komist að samkomulagi um að fjárhagsþáttur verkefnisins verði endurskoðaður. Þrír ráðherrar undirrituðu í mars, ásamt fulltrúum sveitarfélaga, viljayfirlýsingu um flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaga árið 2011. Halldór segir að það eigi að ganga eftir, enda sé vinna við þann málaflokk lengra komin. Málefni aldraðra gætu verið komin til sveitarfélaganna árið 2013. Í viljayfirlýsingunni kemur fram að heildarkostnaður ríkisins við málefni fatlaðra nemi um tíu milljörðum á ári. Halldór segir erfiðara að meta kostnaðinn við málefni aldraðra, þau séu að hluta til heilbrigðismál og mun flóknari en málefni fatlaðra. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að setja á fót tekjustofnanefnd sem fari yfir tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Halldór fagnar því, enda sé það í samræmi við kröfur sveitarfélaganna. Hann væntir þess að nefndin geti tekið til starfa á næstu vikum. „Starf slíkrar nefndar hangir saman við flutning verkefna,“ segir Halldór. Þá segir einnig í stjórnarsáttmála að unnar verði tillögur að eflingu lýðræðis á sveitarstjórnarstigi í samvinnu við sveitarfélög og að höfðu samráði við íbúa um land allt. Þá verði sett ákvæði um gerð siðareglna á sveitarstjórnarstigi. Einnig er gert ráð fyrir að hlutverk sveitarfélaga í velferðarþjónustu við börn og fjölskyldur verði aukið með flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga. kolbeinn@frettabladid.is halldór halldórsson
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Langar biðraðir á Keflavíkurflugvelli óásættanlegar „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Sjá meira