Innlent

Síbrotakona dæmd í 12 mánaða fangelsi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hæstiréttur dæmdi í dag Emilíu Rós Hallsteinsdóttur í 12 mánaða fangelsi fyrir rán í Litlu Kaffistofunni og að hafa ógnað starfsmanni með hnífi. Þá var Emilía jafnframt dæmd fyrir nytjastund og að hafa tvisvar sinnum ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Með brotunum rauf Emilía skilorð sem hún hafði fengið fyrir umferðalagabrot og brot gegn valdstjórninni. Þá hafði hún áður verið dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir rán en hún var ekki orðin 18 ára þegar að hún framdi það brot. Hún hafði einnig fengið sektir fyrir auðgunar- og umferðarlagabrot. Dómurinn taldi háttsemi Emilíu í Litlu Kaffistofunni vera ógnandi og var það metið henni til refsiþyngingar. Hins vegar voru ekki teknir miklir fjármunir og Emilía játaði brot sín að mestu leyti. Auk 12 mánaða fangelsis var Emilía svipt ökuréttindum í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Emilíu í 16 mánaða fangelsi og svipt hana ökuréttindum í þrjú ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×