Innlent

Ráðherrarnir fljúga með áætlunarflugi norður

Akureyrarflugvöllur.
Akureyrarflugvöllur. MYND/KK

Fyrsti ríkisstjórnarfundur nýrrar ríkisstjórnar verður á Akureyri á morgun. Í ljósi þess að ekki mega fleiri en fjórir ráðherrar fljúga saman í flugvél af öryggisástæðum, mætti ætla að erfitt gæti orðið að koma hópnum norður. Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, segir svo þó ekki vera.

Einhverjir ráðherranna leggja af stað norður í dag og í kvöld og restin flýgur á morgun. Allir ráðherrarnir fljúga með áætlunarflugi, að sögn Hrannars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×