Innlent

Bankarnir réðu bresk almannatengslafyrirtæki

Íslensku bankarnir réðu til sín bresk almannatengslafyrirtæki til að fá þarlenda fjölmiðla í lið með sér í góðærinu. Þetta segir framkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka blaðamanna. Á annað hundrað jákvæðar greinar í breskum blöðum hafi orðið til þess að Bretar lögðu nærri tvo milljarða punda í íslenskar fjárfestingar eða um 400 milljarða króna á gengi dagsins í dag.

Aidan White, framkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka blaðamanna, segir að íslensku bankarnir hafi ráðið almannatengslafyrirtæki í Bretlandi til þess að reyna að hvetja til fjárfestinga Breta í íslenskum fyrirtækjum. Eitt af því sem almannatengslafyrirtækin hafi gert var að setja upp ísbari í húsnæði margra af fjölmiðlum í Bretlandi þar sem veittar voru upplýsingar. Í kjölfarið hafi verið birtar 157 greinar um það hversu frábært það væri að fjárfesta í íslenskum bönkum.

White segir að bretar hafi fjárfest um tvo milljarða punda í íslenskum bönkum og fyrirtækjum í kjölfarið á þessari góðu umfjöllun sem Ísland og íslensk fyrirtæki fengu í breskum fjölmiðlum. Hann segir áhrifin af þessu vera þau að þúsundir Breta hafi fjárfest í Íslandi.

White segir engann vafa á því að margir Bretar sitji í sárum eftir að hafa fjárfest í íslenskum fyrirtækjum. Margir hafi fallið fyrir þeirri hugmynd að verða ríkir hratt, sem fjölmiðlar og aðrir hafi selt þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×