Skuggasveinar gefa út disk 10. september 2009 06:00 Tónlist Magnús, Gunnar, Árni, Haraldur, Ari og Vilhjálmur í hljóðveri Vilhjálms. Jóhann Hjörleifsson var vant við látinn. Fréttablaðið/Vilhelm
Saman er komin sveit knárra heldri manna úr íslenska tónlistarbransanum sem hafa æft upp prógramm með frumsömdum lögum sem brátt koma út. Hljómsveitin nefnist Skuggasveinar og liðsmenn eru engir aukvisar: Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartansson, Vilhjálmur Guðjónsson, Ari Jónsson, Haraldur Þorsteinsson, Árni Jörgensen og Júlíus Hjörleifsson. Væntanleg er frá sveitinni diskur sem skartar nýjum lögum eftir Gunnar, Vilhjálm og Árna. Allir hafa þeir gert garðinn frægan, sumir frá því snemma á sjöunda áratugnum, aðrir skemur. Gunnar og Magnús léku síðast saman í Sléttuúlfunum ef menn muna rétt. Ari er þekktastur fyrir Roof Tops-árin sín, Haraldur á að baki langan feril sem bassaleikari og eins Vilhjálmur sem margtækur maður á hljóðfæri. Jóhann er yngstur þeirra félaga. Aðkoma Árna er úr annarri átt: Tildrög sveitarinnar var Shadows-prógramm þar sem Árni Jörgensen var kallaður til þátttöku en hann hefur lengi komið fram með Siglfirðingagrúppu sem á rætur sínar að rekja til áranna þegar hljómsveitin Shadows var ráðandi í gítarbítli. Gunnar Þórðarson segir að fyrir tveimur árum hafi menn komið saman í hljóðveri Villa Guðjóns á Laufásveginum og verið að spila saman á gítara. Þá hafi hugmyndin kviknað fyrir alvöru. Nú hafi sveitin tekið upp átján, nítján lög og smiðshöggið verði slegið um næstu helgi á tólf laga safn. Hvaða tónlist þetta sé? Hann svarar seint og kallar þetta einhvers konar bítl: „Við hlaupum ekki frá okkar áhrifavöldum. Þarna er allt sungið og mikið raddað,“ segir Gunnar. Diskurinn kemur út eftir örfáar vikur. Annars stefnir Gunnar vestur á Ísafjörð þar sem hann spilar einleikskonsert í Edinborg kl. 20.30 föstudaginn 11. september. - pbb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira