M-ið verður urðað 31. október 2009 03:30 McDonalds skyndibitastaður „
Ég hafði ekki leyfi til að láta neinn fá merkingarnar. Ég urða þær seinna,“ segir Jón Garðar Ögmundsson, eigandi Lystar ehf. sem rekur McDonald‘s á Íslandi. Síðustu McDonald‘s-hamborgararnir á Íslandi verða seldir í kvöld. Á morgun verður svo hafist handa við að rífa niður rauðu og gulu merkingarnar og örlög þeirra verða táknræn. Enginn hefur falast eftir merkingunum, enda má Jón ekki afhenda þær neinum og þær enda því á haugunum. Engar innréttingar verða fjarlægðar, svo að ásýnd staðarins umturnast ekki þegar hann breytist í íslenska hamborgarastaðinn Metró. Hamborgararnir hafa hreinlega rokið út eftir að tilkynnt var að McDonald‘s myndi ljúka rekstrinum í vikulok. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að 10.000 borgarar seldust á dag, sem hlýtur að vera Íslands- ef ekki Norðurlandamet. Samkvæmt Jóni hefur enginn falast eftir frosnum McDonald‘s-borgurum fyrir framtíðina, enda er sama sagan með þá og merkingarnar – óleyfilegt er að afhenda þá hamborgarahungruðum Íslendingum.- afb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Sjá meira