Innlent

Hátt í 400 kandídatar útskrifast frá HÍ á morgun

Frá brautskráningu HÍ árið 2007.
Frá brautskráningu HÍ árið 2007.
Alls útskrifast 367 kandídatar frá Háskóla Íslands á Háskólahátíð klukkan eitt á morgun. Kandídatarnir eru úr öllum deildum Háskólans að frátalinni Tannlæknadeild og Matvæla- og næringarfræðideild. Á Háskólahátíð á morgun munu tvær heyrnarlausar konur brautskrást frá Háskóla Íslands, þær Heiðdís Dögg Eiríksdóttir og Steinunn Lovísa Þorvaldsdóttir. Heiðdís Dögg brautskráist úr Hjúkrunarfræðideild og Steinunn Lovísa frá Félags- og mannvísindadeild. Steinunn Lovísa brautskráist með BA-próf í þjóðfræði með mannfræði sem aukagrein.

Þær Heiðdís Dögg og Steinunn Lovísa eru fyrstu heyrnarlausu einstaklingarnir sem brautskrást úr þessum fræðigreinum frá Háskóla Íslands. Heiðdís Dögg er jafnvel talin fyrsta heyrnarlausa konan til að brautskrást sem hjúkrunarfræðingur í Evrópu. Brautskráning þeirra Heiðdísar Daggar og Steinunnar Lovísu er talinn mikilvægur áfangi fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×