Innlent

Nær til 90% þjóðarinnar þrátt fyrir breytinguna

Breki Logason skrifar
Ari Edwald
Ari Edwald
Ari Edwald útgáfustjóri Fréttablaðsins og forstjóri 365 segir fríblaðsformið síður en svo vera dautt þrátt fyrir að Fréttablaðið hafi dregið saman seglin í frídreifingu hér á landi. Um næstu mánaðarmót verður blaðinu dreift frítt á höfuðborgar­svæðinu og á suðvesturhorninu, Borgarnesi, Akranesi, Árborg, Reykjanesi, og Akureyri. Á öðrum stöðum mun Fréttablaðið fást í lausasölu á kostnaðarverði.

Ari segir að hvarvetna í heiminum afmarkist fríblöð við ákveðin þéttbýlissvæði og nefnir þar „metroblöðin" í Danmörku.

„Við erum engu að síður að hitta fyrir 90% þjóðarinnar á þeim svæðum þar sem blaðinu er dreift frítt. Auglýsingatekjurnar koma frá þessum stöðum og auglýsendur einbeita sér að þessum markaði. Það er því algjörlega rökrétt að þetta séu starfssvæði fríblaðsins," segir Ari.

Hann segir breytinguna hafa það í för með sér að nú séu menn að vinna með tvö viðskiptamódel. Annarsvegar er það fríblaðsmódelið sem Fréttablaðið hefur keyrt á og síðan gefst fólki færi á að kaupa blaðið á kostnaðarverði á þeim svæðum sem því er ekki dreift frítt.

Ari segir að um nokkurskonar tilraun sé að ræða um hvernig megi koma á móts við þau svæði sem ekki fá frídreifingu. Einungis verður rukkað fyrir pappírskostnað af hálfu Fréttablaðsins en öll önnur þjónusta við blaðið verður áfram ókeypis.

„Svo verður að ráðast hver kostnaður dreifingar- og smásöluaðila verður. Blaðið gæti verið í kringum hundrað kallinn í smásölu þó við setjum engar línur í því," segir Ari.

Hann segir dreifingaraðila hafa sýnt þessu mikinn áhuga og þeir hafi fengið fjölmargar fyrirspyrnir frá bæði flutningafyrirtækjum og öðrum smásöluaðilum um hvernig þeir geti komið inn í þessa mynd.

„Fjöldi blaða á hvert svæði ræðst síðan bara af eftirspurninni og við rennum svolítið blint í sjóinn með það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×