Verður með marga fermetra af köngulóarvef 19. október 2009 02:00 Páll Óskar telur líklegt að hann verðir vampíra í partíinu.MYND/ODDVAR „
Við erum komin með marga fermetra af köngulóarvef og fullt af alls konar litlum græjum og skrautmunum. Við ætlum að gera okkar allra besta í að breyta Nasa í draugahús – eða draugakastala réttara sagt,“ segir poppkóngurinn Páll Óskar Hjálmtýsson. Páll Óskar heldur risahrekkjavökupartí á Nasa laugardaginn 31. október. Partíið verður afar veglegt og húsið verður skreytt í anda Hammer-hryllingsmyndanna sem komu fyrst út á fimmta áratug síðustu aldar. „Annars ætlum við líka að nota öll leikhúsmeðulin sem til eru,“ segir Páll. Hrekkjavökupartí eru afar vinsæl erlendis og þá sérstaklega í Bandaríkjunum. Páll Óskar fagnar því að Íslendingar hafi tekið við sér síðustu ár og byrjað að halda í meiri mæli upp á hrekkjavökuna – hátíð hinna framliðnu. Hann hvetur fólk til þess að vera hugmyndaríkt í búningavali og vonast til þess að flóran verði fjölbreytt. „Þrátt fyrir að Nasa líti út eins og draugahús, þá er engin skylda að fólk mæti í partíið eins og nornir eða forynjur,“ segir hann. „Það getur verið kostnaðarsamt að breyta sér í vampíru, en góðar hugmyndir fyrir svona grímuböll þurfa ekki að vera dýrar. Ef pabbi þinn var slökkviliðsmaður eða mamma þín hjúkka – eða ef þú þekkir einhvern sem vann á hamborgarastað – þá er ekkert mál að fá einkennisbúningana lánaða og mæta þannig. Ef maður kíkir á þessi partí sem eru haldin erlendis, þar sem allar stjörnurnar mæta, þá er það ímyndunaraflið sem ræður og fólk heldur ekkert endilega í hryllingsmyndabúningana.“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Fleiri fréttir Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Sjá meira