Innlent

Vélsleðamaðurinn á leið til Reykjavíkur

Verið er að flytja vélsleðamann sem féll ofan í sprungu upp úr á vestanverðum Langjökli fyrr í kvöld til Reykjavíkur með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Í tilkynningu kemur fram að ekki sé hægt staðfesta hversu mikið slasaður maðurinn er.

Á sjöunda tímanum í kvöld voru björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarfirði og Akranesi kallaðar út vegna slyssins. Maðurinn var á ferð með hópi vélsleðamanna og féll í sprungu á Geitlandsjökli sem er vestasti hluti Langjökuls fyrir ofan Kaldadal.

Björgunarsveitarmenn og þyrla Landhelgisgæslunnar komu á slysstað á níunda tímanum í kvöld.




Tengdar fréttir

Þyrla kölluð út vegna slyss á Langjökli

Björgunarsveitir voru kallaðar út á sjöundatímanum í kvöld þegar tilkynnt var um slys á Langjökli. Sæunn Ósk Kjartansdóttir hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir að tildrög slyssins séu óljós en svo virðist sem að maður maður hafi fallið um sprungu í Geitlandsjökli sem er vestastihluti Langjökuls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×