Ráðherra vill reglur sem tryggja jöfn kynjahlutföll á framboðslistum 18. febrúar 2009 11:01 Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir vill jafnt kynjahlutfall á framboðslistum. „
Brýnt er að stjórnmálaflokkarnir móti sér reglur er tryggi að hlutur kynjanna á framboðslistum verði sem jafnastur, ekki síst í þeim sætum sem gera má ráð fyrir að skili frambjóðendum inn á þing, segir í bréfi sem Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra hefur sent formönnum stjórnmálaflokkanna vegna komandi þingkosninga. Félags- og tryggingamálaráðherra, sem jafnframt er ráðherra jafnréttismála, leggur ríka áherslu á það hlutverk flokkanna að tryggja konum og körlum jafna hlutdeild í lýðræðislega kjörnum stofnunum samfélagsins. Ráðherra segir í bréfinu að búast megi við að efnahagsástandið letji konur fremur en karla til að gefa kost á sér á framboðslista þar sem rannsóknir sýni að þær beri meiri fjölskylduábyrgð en karlar. Versnandi efnahagur heimilanna geti því orðið til þess að færri konur gefi kost á sér en áður. Í bréfinu kemur jafnframt fram að í alþingiskosningunum árið 2003 voru konur 43% frambjóðenda en hlutur þeirra á þingi varð einungis 30,2%. Í alþingiskosningunum árið 2007 voru þær 47% frambjóðenda, en urðu 31,7% þingmanna. Líkur hvers kvenframbjóðanda á að ná sæti á Alþingi höfðu þá minnkað frá því sem verið hafði fjórum árum áður. Hlutur kvenna varð mestur eftir kosningarnar 1999 fyrir réttum tíu árum eða 34,9%. Í ljósi þessa sé mikilvægt að raða konum í örugg sæti á framboðslistum til jafns við karla.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Sjá meira