Innlent

Ráðherra vill reglur sem tryggja jöfn kynjahlutföll á framboðslistum

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir vill jafnt kynjahlutfall á framboðslistum.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir vill jafnt kynjahlutfall á framboðslistum.
„Brýnt er að stjórnmálaflokkarnir móti sér reglur er tryggi að hlutur kynjanna á framboðslistum verði sem jafnastur, ekki síst í þeim sætum sem gera má ráð fyrir að skili frambjóðendum inn á þing, segir í bréfi sem Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráðherra hefur sent formönnum stjórnmálaflokkanna vegna komandi þingkosninga.

Félags- og tryggingamálaráðherra, sem jafnframt er ráðherra jafnréttismála, leggur ríka áherslu á það hlutverk flokkanna að tryggja konum og körlum jafna hlutdeild í lýðræðislega kjörnum stofnunum samfélagsins.

Ráðherra segir í bréfinu að búast megi við að efnahagsástandið letji konur fremur en karla til að gefa kost á sér á framboðslista þar sem rannsóknir sýni að þær beri meiri fjölskylduábyrgð en karlar. Versnandi efnahagur heimilanna geti því orðið til þess að færri konur gefi kost á sér en áður.

Í bréfinu kemur jafnframt fram að í alþingiskosningunum árið 2003 voru konur 43% frambjóðenda en hlutur þeirra á þingi varð einungis 30,2%. Í alþingiskosningunum árið 2007 voru þær 47% frambjóðenda, en urðu 31,7% þingmanna. Líkur hvers kvenframbjóðanda á að ná sæti á Alþingi höfðu þá minnkað frá því sem verið hafði fjórum árum áður. Hlutur kvenna varð mestur eftir kosningarnar 1999 fyrir réttum tíu árum eða 34,9%. Í ljósi þessa sé mikilvægt að raða konum í örugg sæti á framboðslistum til jafns við karla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×