Viðskiptavinirnir hjálpuðu 21. nóvember 2009 01:00 Lúxus heilsumiðstöð Sigga Dóra opnar 400 fermetra lúxus heilsumiðstöð á Stórhöfða 17 milli klukkan 17 og 19 í dag, en þar verður boðið upp á fjölbreytta líkamsrækt og dekur.Fréttablaðið/GVA
Sigríður Halldóra Matthíasdóttir líkamsræktarþjálfari, eða Sigga Dóra, er hvergi smeyk við kreppuna heldur opnar í dag 400 fermetra líkamsræktar- og lúxus heilsumiðstöð. „Ég er alveg ósmeyk við þetta,“ segir Sigríður Halldóra Matthíasdóttir líkamsræktarþjálfari, eða Sigga Dóra, sem opnar í dag 400 fermetra líkamsræktar- og lúxus heilsumiðstöð á Stórhöfða 17. Sigga Dóra er engin nýgræðingur þegar kemur að heilsurækt því hún hefur kennt í Veggsport og Varma í Mosfellsbæ um árabil, auk þess sem hún heldur regulega lífstílsnámskeið fyrir smærri hópa á Flórída.„Nú er ég að láta drauminn rætast og opna líkamsræktarstöð með glæsilegri dekurstofu á efri hæðinni. Þar verður meðal annars gufubað, nuddarar og höfuðbeina- og spjaldrhyggsmeðferð.Sjálf verð ég áfram með Líkama og sál námskeið og svo verða allskyns nýjungar, svo sem danskennsla, jóga og jafnvel spákonur. Allt sem snýr að heilsu og dekri,“ segir Sigga Dóra sem var önnum kafin við að leggja lokahönd á húsnæðið fyrir opnunina þegar blaðamaður náði tali af henni. „Fasteignabransinn var hérna til húsa árið 2007, en nú er gaman að sjá þetta húsnæði vera nota fyrir dekur og til að fá fólk til að hugsa um heilsuna,“ bætir hún við. En er ekki erfitt að opna nýja heilsuræktarstöð í kreppunni? „Það hefur verið vaxandi aðsókn í líkamsræktina hjá mér og mér finnst fólk vera að sækja meira í að fá líkamann og andlegu heilsuna í lag. Ég er ekki fjárhagslega vel stödd, en ég er svo heppin að ég hef marga kúnna sem hafa verið hjá mér til margra ára og þar á meðal eru arkitekt, smiður, rafvirki og pípari. Þeir lögðu fram sína vinnu og hvöttu mig til að taka sénsinn,“ segir Sigga Dóra. - ag
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira