Gæslan þarf að skera niður eins og aðrar stofnanir 25. febrúar 2009 15:32 Georg Lárusson
Þremur þyrluflugmönnum hefur verið sagt upp hjá Landhelgisgæslunni. Félag atvinnuflugmanna gagnrýnir uppsagnirnar og segir þær skerða þjónustu m.a. við sjófarendur. Félagið segir forsendu þess að hægt sé að fara í björgunarflug út á opið haf sé að hafa tvær vaktir sem nú verði erfitt að manna. Georg Lárusson forstjóri segir hinsvegar að uppsagnirnar taki ekki gildi fyrr en í haust, en telur að þrátt fyrir þær verði hægt að manna tvær vaktir. Hann segir á bilinu 20-30 manns missa vinnuna hjá gæslunni sem þurfi að skera niður eins og aðrar stofnanir. „Við eigum í fjárhagserfiðleikum eins og aðrir og verðum að bregðast við því með hagræðingu í rekstri. Það sem við höfum hinsvegar haft að leiðarljósi er að þetta komi sem allra minnst niður á viðbragðsgetu gæslunnar hvað varðar leit og björgun og við teljum okkur hafa getað mætt því eins og kostur er," segir Georg og bendir á að dregið sé einna minnst úr fluginu í starfsemi stofnunarinnar. Hann segir augljóst að fækkun 20-30 starfsmanna komi niður á þjónustu Landhelgisgæslunnar en hvað flugið varðar taki þær uppsagnir ekki gildi fyrr en næsta haust. „Við reiknum því með að halda óskertri getu yfir þá mánuði sem mest á okkur mæðir." Georg segir fjárhagsvandræðin fyrst og fremst stafa af gengisþróun íslensku krónunnar og vonar að breytingar á hagsældinni geti orðið til þess að uppsagnirnar taki ekki gildi. „Við vitum að það þarf að skera niður og við verðum bara að mæta því." Georg bendir einnig á að það sé ekki sitt að ákveða hversu mikið fé sé sett í stofnunina heldur sé það stjórnmálamannanna. „Við reynum síðan að gera sem mest fyrir það fé sem við höfum til umráða og reynum að gera það á sem skynsamastan máta. Auðvitað vil ég fá meira fé og ég er viss um að forstjóri Landspítalans eð lögreglustjórinn segi það sama. Ég er hinsvegar sammála því að það eigi að leggja áherslu á öryggis- og björgunarmál en það eru pólitíkusarnir sem ákveða það."
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira