Seðlabankafrumvarp hugsanlega að lögum innan tveggja vikna 11. febrúar 2009 18:45
Stjórnarliðar telja líklegt að frumvarp ríkisstjórnarinnar um Seðlabankann verði afgreitt úr nefnd í næstu viku og geti jafnvel orðið að lögum innan hálfs mánaðar. Allir flokkar á Alþingi standa að þremur aðskildum frumvörpum um breytingar á yfirstjórn bankans, nema Sjálfstæðisflokkurinn sem ekki hefur lagt fram neinar formlegar tillögur í málinu. Nú liggja þrjú frumvörp fyrir viðskiptanefnd Alþingis um breytingar á yfirstjórn Seðlabanka Íslands, það eru frumvarp ríkisstjórnarinnar, Framsóknarflokksins og Frjálslynda flokksins. Forsætisráðherra lagði til að frumvarp stjórnarinnar færi til efnahags- og skattanefndar eins og algengt er um efnahagsfrumvörp hennar embættis. Í þeirri nefnd hafa stjórnarflokkarnir meirihluta, eða fimm af níu fulltrúum, en vegna þrýstings frá framsóknarmönnum vísaði hún frumvarpinu að lokum til viðskiptanefndar þar sem stjórnarflokkarnir hafa þrjá af níu fulltrúum og þurfa því að reiða sig á stuðning fulltrúa Framsóknarflokksins til að koma málinu úr nefnd. Heimildarmenn fréttastofu innan stjórnarflokkanna telja stuðninginn nokkuð vísan og eru bjartsýnir á að málið komi úr nefnd í næstu viku og verði jafnvel að lögum innan tveggja vikna. Málið er eitt af helstu forgangsmálum ríkisstjórnarinnar en þrátt fyrir augljósan og einbeittan vilja ríkisstjórnarinnar sitja tveir af þremur seðlabankastjórum enn og þar af formaður bankastjórnarinnar, Davíð Oddsson sem fastast. Ingimundur Friðriksson lét af störfum á mánudag og í gær lýsti Eiríkur Guðnason því yfir að hann býðist til að láta af störfum í júní. En hvað skilur frumvörpin þrjú að? Frumvörp ríkisstjórnarinnar og frjálslyndra gera ráð fyrir einum bankastjóra en Framsóknarmanna fyrir þremur áfram, í öllum frumvörpunum er gert ráð fyrir að staðan eða stöðurnar verði auglýstar, ríkisstjórnin vill að ráðningartími verði sjö ár, mest í tvígang, Framsókn vill óbreytt fyrirkomulag en frjálslyndir að ráðið verði til fimm ára og aldrei oftar en tvisvar. Öll gera frumvörpin ráð fyrir háskólamenntun en hún er tilgreind nánar í stjórnarfrumvarpinu en í hinum frumvörpunum og með mismundandi orðalagi er krafist reynslu af peningamálum. Mestur ágreiningur verður sennilega um peningastefnunefnd, sem er ný nefnd sem stjórnarflokkarnir leggja til að starfi með bankastjóra að mótun peningamálastefnunnar. Ef stjórnarfrumvarpið verður að lögum á næstu 2 - 3 vikum, verður staðan væntanlega augýst strax og þá getur forsætisráðherra skipað bankastjóra til bráðabirgða þar til nýr verður ráðinn, því með frumvarpinu yrði staða núverandi bankastjóra lagðar niður.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira