Ríkisstjórnin þorir ekki 3. júní 2009 15:42
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ríkisstjórnin þori ekki að taka af skarið þegar komi að aðstoða fjölskyldur og fyrirtæki í landinu. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir skuldavanda heimilanna minni en talið hefur verið. Staða heimilanna var til umræðu utan dagskrár á Alþingis í dag að frumkvæði Sigmundar sem sagði afar brýnt að ræða stöðuna.Stefnir í ógurlegt ástand Í máli sínu vitnaði Sigmundur í nýjar upplýsingar frá Fjármálaeftirlitinu um þróun mála. Hann sagði alvarlegum vanskilum einstaklinga og fyrirtækja, sem hafi ekki með nokkru móti getað staðið í skilum og varið hafa í þrjá mánuði eða lengur hafa fjölgað mikið undanfarið ár. Vandi einstaklinga hafa sjöfaldast á ári. Sigmundur fullyrti ástandið muni halda áfram að versna og að stöðugt fleiri muni lenda í hópi þeirra sem geti ekki staðið í skilum. Þá vitnaði flokksformaðurinn í upplýsingar frá Creditinfo þar sem komi fram að 18.733 einstaklingar 18 ára eða eldri séu í alvarlegum vanskilum. Hann sagði áætlanir gera ráð fyrir að 10.000 einstaklingar munu bætast við á næstu mánuðum og að botninum verði ekki náð fyrr en vorið 2010. Það stefnir í ógurlegt ástand á næstum 5 til 6 árum ef ekki verður ráðist í úrbætur, sagði Sigmundur. Hann sagði að afskrifa þurfi skuldir til fjölskyldna og fyrirtækja og því seinna sem brugðist verði við því mun meiri verði skaðinn. „Við þessar aðstæður verða allar aðstæður umdeilanlegar," sagði Sigmundur og bætti við ríkisstjórnin þori ekki að taka af skarið. Skuldavandi fólks minni Jóhanna sagði langstærstan hluta heimila í landsinu búa við viðráðanlega greiðslubyrði vegna fasteigna- og bílalána. Þetta kæmi fram í nýjum niðurstöðum Seðlabankans. Um væri að ræða um 60% af húsnæðisskuldum landsmanna. Ríkisstjórnin hefur komið til móts við þarfir almennings með ýmsum leiðum, sagði Jóhanna. Jafnframt sagði hún Seðlabankann hafa komist að þeirri niðurstöðu að hugmyndir um flata niðurfellingu skulda væri ófær og að sú leið myndi kosta ríkissjóð gríðarlegar fjárhæðir. Jóhanna sagði að úrræði ríkisstjórnarinnar væri að virka og þau ættu að nýtast flestum þeim væru í vanda. Nauðsynlegt væri að koma öðrum í vanda til aðstoðar. Þá sagði hún að í samræmi við 100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar verði greiðsluerfiðleikaúrræði stjórnvalda kynnt landsmönnum mun betur á næstunni.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Vísbendingar um aukna kjörsókn Innlent Fleiri fréttir Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Sjá meira