Þorskkvótinn aukinn um 30 þúsund tonn 16. janúar 2009 11:28
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn. Heildaraflamark verður því 160 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári, í stað 130 þúsund tonna sem áður hafði verið ákveðið. Í tilkynningu um málið segir að með þessari ákvörðun er stefnt að nokkru hægari uppbyggingu viðmiðunarstofns og hrygningarstofns en áður hafði verið áformað. Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þeirra efnahagserfiðleika sem þjóðarbúið á við að etja og með hliðsjón af jákvæðari vísbendingum um stöðu þorskstofnsins sem fram komu í stofnmælingu botnfiska sl. haust. Í þeirri mælingu kom fram að heildarvísitala þorsks væri mun hærri en undanfarin ár. Jafnframt er gert ráð fyrir að á næsta fiskveiðiári verði heildaraflamark í þorski eigi lægra en 160 þúsund tonn. Þótt uppbygging viðmiðunar- og hrygningarstofn þorsks verði hægari en fyrirhugað var, er þessi ákvörðun í samræmi við yfirlýst markmið um sjálfbærar veiðar á þorski sem og öðrum nytjastofnum hér við land.
Mest lesið Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Erlent Sérsveitaraðgerð á Selfossi Innlent Páfi hefur áhyggjur af tjáningarfrelsi á Vesturlöndum Erlent Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Innlent Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Innlent Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Innlent Banaslys í Rangárþingi Innlent Fleiri stelpur týndar en áður Innlent Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Innlent Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Innlent Fleiri fréttir Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Sérsveitaraðgerð á Selfossi Fleiri stelpur týndar en áður Húsnæðismálin „helsti drifkraftur verðbólgu síðasta áratuginn“ „Evrópusambandið hefur haft sömu viðskiptastefnu og Trump“ Sviminn hvarf eftir aðgerðina og hækjan horfin Banaslys í Rangárþingi Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Fyrsta ár Náttúruverndarstofnunar gekk glimrandi vel Inga vill skóla með aðgreiningu Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Meirihluti hlynntur aðildarviðræðum: „Margt breyst á stuttum tíma“ Meirihluti vill viðræður við ESB og mikið mannfall í Íran Grunaðir um íkveikju í eigin húsnæði Jóhanna Lilja, kartöflubóndi í Þykkvabæ, heiðruð Engin merki um gosóróa í skjálftahrinu á Reykjaneshrygg Inga um nýtt embætti og staða Íslands í alþjóðamálum Barn flutt á slysadeild með áverka eftir flugelda Þrír handteknir vegna gruns um íkveikju Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu „Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss Stofna ný samtök gegn ESB aðild Miklar tafir vegna áreksturs í Vesturbæ Náið fylgst með stöðu mála í Venesúela hjá Útlendingastofnun Utanríkisráðherra Þýskalands fundar með Þorgerði Hryðjuverkamálið komið á dagskrá Hæstaréttar Seinka læknisskoðun fyrir endurnýjun ökuskírteina Íranir mótmæltu við stjórnarráðið Sjá meira