Innlent

Viðmótið gott eftir okrið 2007

Þórir með ullarvarning Íslendingar una ekki hag sínum vel eins og gengi krónunnar er en það er léttari brúnin á erlendu ferðamönnunum þegar þeir koma til Þóris nú en árið 2007 þegar gengið var hátt.
mynd/Jóhannes Kristjánsson
Þórir með ullarvarning Íslendingar una ekki hag sínum vel eins og gengi krónunnar er en það er léttari brúnin á erlendu ferðamönnunum þegar þeir koma til Þóris nú en árið 2007 þegar gengið var hátt. mynd/Jóhannes Kristjánsson

Verslunarmenn í Vík í Mýrdal segja erlenda ferðamenn vera fjölmenna þar frá því í febrúar og kaupgleðin mun meiri en áður hefur þekkst. Segja þeir lágt gengi krónunnar ráða mestu um þessa þróun.

„Það var orðið afar óþægilegt að heyra ferðamennina tala um það hvers konar okurbæli þetta Ísland væri árið 2007,“ segir Þórir Kjartansson, framkvæmdastjóri Víkurprjóns. „Nú er viðmótið allt annað og þeir kaupa miklu meira.“

Elías Guðmundsson, sem rekur Víkurskálann, tekur í sama streng. „Maður sá fram á langan vetur þegar hrunið varð í haust en svo fór bara að sumra í febrúar. Við Þórir erum hérna með okkar þjónustu á torginu sem við höfum stundum kallað Torg hins himneska friðar, svona í gríni en það stendur ekki undir því nafni eins og umferðin er orðin.“- jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×