Freistar þess að komast í úrslit Eurovision í Svíþjóð 22. október 2009 06:00 Halla Vilhjálms vinnur að því að koma sér á framfæri í Svíþjóð. fréttablaðið/hörður „
Ég hugsaði að það væri lítill möguleiki, en ég er á topp 20 listanum í dag. Þeir sem eru á honum hljóta að hafa fengið alveg ógeðslega mörg atkvæði,“ segir tónlistarmaðurinn og leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir. Halla býr nú í Svíþjóð þar sem hún vinnur að því að koma sér á framfæri sem tónlistarmaður. Á dögunum sendi hún lagið How í vefkeppni Melodifestivalen, sem er undankeppni Eurovision í Svíþjóð. Lagið er komið í gegnum fyrsta niðurskurð, er þar á meðal tuttugu vinsælustu laganna, og í næstu viku komast fimmtíu lög áfram. Því næst komast tíu lög áfram og loks falla lögin úr keppni koll af kolli þangað til eitt stendur uppi sem sigurvegari. Melodifestivalen er vinsælasta sjónvarpsefni Svíþjóðar, en milljónir fylgjast með keppninni á hverju ári. Halla segir að keppnin opni keppendum ýmsar dyr. „Það er nóg að komast á Melodifestivalen til að fá gigg og plötusamning,“ segir hún. „Það er ekki séns að fá ekki plötusamning ef maður tekur þátt í Melodifestivalen – það er besta forskot sem hægt er að fá.“ Halla hefur ekki áður reynt fyrir sér í Svíþjóð. Hún vinnur nú að því að koma sér á framfæri og heldur úti Twitter- og Facebook-síðum sem hún uppfærir á reiprennandi sænsku. „Hérna í Svíþjóð hef ég ekkert forskot, engin sambönd – ekki neitt,“ segir hún. „Þannig að ég er á byrjunarreit að reyna að búa mér til vinnu sem tónlistarmaður.“ Íslendingum í Svíþjóð er bent á vefsíðuna www.hejahalla.se, en þar er hægt að hlusta á lag Höllu og fá allar upplýsingar um hvernig á að kjósa lagið. Aðeins þeir sem eru með sænsk símanúmer geta kosið, en Halla hefur fundið fyrir miklum stuðningi frá Íslendingum í Svíþjóð og þeim sem búa heima en eiga ættingja ytra. „Það er hjartnæmt hvað fólk getur hjálpað manni,“ segir hún. „Mér finnst Íslendingar vera ótrúlega góðir í að styðja sína þegar kemur að svona. Ég er að fá skilaboð frá alls konar fólki, sem ég þekki jafnvel ekki mikið, sem er búið hafa samband við fjölskyldur sínar í Svíþjóð og fá þær til að kjósa.“
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Fleiri fréttir Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Sjá meira